Stillingar fyrir Internet, MMS og streymi er hægt að senda í flest símtæki sjálfvirkt, en fyrir þau símtæki sem styðja það ekki er hægt að setja þær inn handvirkt.
| Heiti tengingar | Siminn Internet |
|---|---|
| Nafn aðgangsstaðar (APN) | internet |
| Heimasíða (ef stutt af handtæki) | http://m.siminn.is |
| IP tala vefsels (proxy) | 213.167.138.200 |
| Port númer vefsels (proxy) | 8080 (eldri WAP símar noti 9201) |
Athugið að þegar Internet stillingar hafa verið uppsettar gæti þurft að stilla vafra símans til að nota þá tengingu (Siminn Internet).
MMS stillingar eru fyrir myndskilaboð sem hægt er að senda á milli farsíma og yfir í tölvu. Einnig er hægt að senda texta, hljóð og/eða myndskeið. Símtækið þarf að styðja GPRS og MMS.
| Heiti tengingar | Siminn MMS |
|---|---|
| Nafn aðgangsstaðar (APN) | mms.simi.is |
| Heimasíða | http://mms.simi.is/servlets/mms |
| IP tala vefsels (proxy) | 213.167.138.200 |
| Port númer vefsels (proxy) | 8080 (eldri WAP símar noti 9201) |
Stillingar fyrir streymi eru fyrir margmiðlunarefni (hljóð og mynd) sem streymt er í símann, t.d. YouTube myndbönd eða sjónvarp í símann.
| Heiti tengingar | Siminn streymi |
|---|---|
| Nafn aðgangsstaðar (APN) | internet |
Athugið að þegar streymistillingar hafa verið uppsettar gæti þurft að stilla margmiðlunarspilara handtækis (t.d. RealPlayer í vissum Nokia símum) til að nota þá tengingu (Siminn streymi).
Módem tenging er gagnaflutningsleið sem byggir á símtali og getur hentað vel sem varaleið ef ferðast er til landa þars sem ekki er GPRS tenging í boði. Greitt er fyrir þann tíma sem tengingin varir.
| Heiti tengingar | Siminn DATA |
|---|---|
| Innhringinúmer | +3548900900 |
| Innhringinúmer fyrir internet í tölvu | +3548900910 |
| Gagnahraði | 9600 eða 14400 |
| Auðkenning | PAP |
| Notendanafn | wap |
| Lykilorð | wap |
DNS nafnaþjónn breytir vefföngum í IP tölur. Í flestum tilfellum er óþarfi að tilgreina nafnaþjóna sérstaklega (settir sjálvirkt).
| Lýsing | Ip tala |
|---|---|
| Fyrri nafnaþjónn | 212.30.200.199 |
| Síðari nafnaþjónn | 212.30.200.200 |
SMS eru textaskilaboð sem hægt er að senda á milli farsíma. Í flestum tilfellum þarf ekki að breyta SMS stillingum þar sem þær eru sjálfvirkt settar upp í handtækjum með SIM kort frá Símanum.
| Lýsing | |
|---|---|
| Númer miðstöðvar | +3548900100 |