Ef það er sónlaust hjá þér er ráðlegt að byrja á því að athuga eftirfarandi:
Oft og tíðum eru símtæki mjög viðkvæm fyrir rafmagnstruflunum. Ef allt rafmagn slær t.d. út getur oft myndast spenna á símtækinu þegar rafmagnið kemst aftur á sem veldur því að tækið hættir að virka. Þess vegna er kjörið að kanna hvort símtækið hafi bilað með því að prófa annað símtæki í sama símatengli ef sá valkostur er fyrir hendi. Þetta getur sparað mikinn tíma og fyrirhöfn.
Ef þú hefur frekari spurningu þá sendu fyrirspurn til þjónustuversins eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.