SpeedTouch 120g (Windows XP)

1 Setja geisladiskinn í tölvuna

Byrjaðu á að setja geisladiskinn merktan "SpeedTouch 120g Set-up and documentation CD" í tölvuna.

ATH: Ekki tengja kortið við tölvuna fyrr en í lið 2


Ef geisladiskurinn fer ekki sjálfkrafa í gang þarf að fara inní "My Computer" og velja þar geisladrifið og smella svo á Setup.exe sem er á disknum. Nú ætti uppsetningarforritið að fara í gang



Bíddu eftir að forritið biðji um að þráðlausa kortið sé tengt við tölvuna.



2 Tengdu þráðlausa kortið.

Tengdu þráðlausa kortið við tölvuna með usb snúrunni.



Eftir að uppsetningin er búin þarf að smella á "finish" og þá endurræsir tölvan sig.

3 Opna hugbúnaðinn fyrir þráðlausa kortið.

Þegar tölvan er búin að endurræsa sig þarf að athuga hvort eftirfarandi tákn birtist í hægra horninu niðri hjá klukkunni. Það ætti að vera merkt með rauðum kross til að byrja með.



Hægri smelltu á þráðlausa táknið í horninu og veldu "Show"



4 Velja þráðlaust net

Smelltu á píluna við felligluggann sem er merktur "Network Name".
Í valinu sem kemur þarf að velja það þráðlausa net sem birtist þar.



Eftir að þú ert búin að velja þráðlausa netið smelltu þá á "Apply Changes".

5 Skoða hvort tenging náðist

Með því að skoða upplýsingarnar undir "Link Information" ætti að sjást hvort tenging komst á eður ei. Ef reitirnir eru auðir þá tókst tenging ekki, en ef reitirnir eru eins og á myndinni hér að neðan tókst tenging.

Ef ekkert kemur í reitina er það líklegast útaf öryggisstillingum beinis, hér að neðan er farið í það hvernig WEP öryggislykilinn er stilltur til að passa við beininn.



6 Öryggisstillingar.

Ef tengingin tókst þarf að tryggja að allar öryggisstillingar séu rétt stilltar svo hægt sé að halda áfram með uppsetningu beinis (sé það ekki búið nú þegar).



7 WEP lykill

Í hugbúnaðinum fyrir þráðlausa kortið þarftu að smella á "Security" flipann og smella þar á hnappinn merktan "Security Off", þá ætti myndin að vera líkt og hér að neðan.

Hérna þarf að slá inn WEP lykil beinis. Án WEP lykils er ekki hægt að koma á þráðlausu sambandi við beininn. WEP lykilin er að finna undir beininum. Verið viss um að velja stillingar líkt og á myndinni hér að neðan. Undir "Key Type" þarf að velja "40/64bit Encryption" og "Authentication Type" þarf að vera á WEP. Sláðu inn WEP lykilin í reitin merktan "Key 1", smelltu á "Apply Changes".

Ath. að það er engin munur gerður á hástaf og lágstaf þegar WEP lykilinn er slegin inn. Einnig eru bókstafir einungis á bilinu "A-F".

 


Að lokum

Þegar búið er að slá inn WEP lykilinn þá ertu tilbúin til að setja upp beininn nema búið sé að setja upp beininn nú þegar. Ef svo er þá ætti tenging við internetið að vera tilbúin núna. Annars er nóg að fylgja leiðbeiningum um uppsetningu á SpeedTouch beininum


« Til baka

Svaraði þetta spurningunni þinni?

Ef þú hefur frekari spurningu þá sendu fyrirspurn til þjónustuversins eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.





Vefhlutar

Aðrir vefir