Fyrst þarf að sækja uppfærsluskrána og vista hana.
Hægt er að finna uppfærsluskránna hér:
http://www.siminn.is/einstaklingar/adstod/uppfaerslur/beinar/

Uppfærslan er geymd í ZIP skrá og fyrst þarf að afpakka ZIP skránni til að ná í uppfærsluna.
Til þess að afpakka ZIP skránni skal hægrismella á skránna sem var sótt (STHIWupgradeBeta.zip) og velja "Extract to..." þar er staðsetning valin sem afpakka á skránni á. Best er að afpakka á stað sem auðvelt er að finna eins og t.d. skjáborðið (e.Desktop)

Farið inn í möppuna sem að birtist þar sem að skránni var afpakkað.
Mappan mun að öllum líkindum heita "STHIWupgradeBeta"
Tvísmellið þar á skránna "upgradeST.exe"

Því næst er smellt á "Next" í þeim gluggum sem koma upp þar til að gluggin hér að neðan birtist, þar er sett inn notendanafnið og lykilorðið inn á beinin (oftast: admin - admin)

Í næsta glugga er uppfræslan valin og smellt á "Next"
Uppfærslan keyrir sig inn...
Smellt er á "Finish" til að klára uppfærsluna.
Ef þú hefur frekari spurningu þá sendu fyrirspurn til þjónustuversins eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.