Uppsetning á E220 HSDPA 3G netkorti fyrir MAC OS X

Þú þarft að hafa við höndina er:

  • USB netkort
  • SIM/USIM kort
  • Internet aðgang.

(Þú getur einnig sótt skrárnar sem til þarf á USB minnislykil ef internet samband er ekki til staðar).

Ekki tengja netkortið við tölvuna fyrr en leiðbeiningarnar segja til um það

Áður en hafist er handa við að setja upp netkortið þarf fyrst að finna út hvaða hugbúnað þarf að setja upp á tölvuna. Hugbúnaðurinn kemur í tveimur útgáfum, annarsvegar fyrir Intel örgjafa og hinsvegar fyrir Power PC örgjafa (PPC). Tryggja verður að rétt útgáfa sé sett upp á vélina.

Kanna örgjafa

Til þess að sjá hvor örgjafinn er í vélinni þinni, smelltu þá á eplið efst í vinstra horni á skjánum hjá þér og veldu About this Mac. Þá kemur upp gluggi sem segir þér hvaða örgjafa þú ert með undir Processor (Intel eða Power PC).

Nauðsynlegt er að skrá inn aðgangsorð til að geta sótt hugbúnaðinn á síðunni. Aðgangsorðið er siminn og lykilorðið elibom

Uppsetning

Eftir að hugbúnaðinum hefur verið hlaðið niður þarf að setja hann upp. Settu fyrst upp pakka 1 og síðan pakka 2, í þessari röð.

Keyrðu fyrst 1_Huawei_DataCard_Drv_App_X.pkg (X = Intel eða PPC)

Og keyrðu síðan 2_HuaweiDataCardDriver(2.7)-X.pkg (X= intel eða power)

Fylgdu leiðbeiningum á skjá og endurræstu tölvuna að lokinni uppsetningu á hugbúnaðinum.

Þegar báðar skrárnar hafa verið uppsettar, skaltu setja SIM/USIM kortið í raufina á netkortinu, og tengja það við USB port tölvunnar með MAC OS X stýrikerfinu.

Bíddu þar til díóðuljósið á netkortinu blikkar tvisvar sinnum grænu ljósi, ef beðið er um PIN á SIM kortið, eða blátt díóðuljós ef PIN kóðinn er óvirkur.

Keyrðu því næst er forritið HuaweiApp sem er í möppunni Applications og finndu forritið HuaweiApp og ræstu það upp.

Þegar forritið hefur ræst sig upp, sláðu þá inn access point name (APN) = internet í glugganum sem kemur upp.

Hættu því næst í HuaweiApp forritinu, farðu í Apple valmyndina og veldu System preferences (staðsett undir eplinu á skjánum) og ýttu á Network flipann.

Veldu Huawei Mobile frá Show felliglugganum.

Settu inn símanúmerið *99# í reitinn Telephone number. Veldu því næst Advanced hnappinn. Skráðu þar inn Vendor = Generic, Model = GPRS(GSM/3G), APN = internet og CID = 1.

Veldu að endingu Apply Now hnappinn og lokaðu glugganum.

Nú er netkortið uppsett og þú getur tengst

Veldu System Preferences (undir eplinu á skjánum) – Network – Huawei Mobile – Connect.

Veldu þar Huawei Mobile og veldu Connect flipann.

Vandamál

Ef HuaweiApp ræsir sig og slekkur síðan strax á sér aftur, athugaðu þá hvaða tungumál er efst á listanum í valmyndinni International í System preferences.

Til þess að skoða það, veldu þá System Preferences (staðsett undir eplinu á skjánum) og veldu þar International. Veldu listann Language. Ef íslenska er efst á listanum, dragðu þá tungumálin til þannig að English sé efst á listanum. Enduræstu síðan tölvuna og prófaðu að ræsa HuaweiApp forritið aftur samvkæmt leiðbeiningum.


« Til baka

Svaraði þetta spurningunni þinni?

Ef þú hefur frekari spurningu þá sendu fyrirspurn til þjónustuversins eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.





Vefhlutar

Aðrir vefir