Settu SIM/USIM gagnakortið í lykillinn í þar til gerða rauf undir lyklinum. Tengið því næst lykilin við laust USB port á tölvu sem ætlunin er að nettengja. Lykillinn setur sig nú sjálfur upp sem USB risageymslu (e. Mass storage Device) á tölvunni.
Þú sérð það á lyklinum með því að blá eða græn díóða blikkar. Ef díóðan blikkar ekki, yfirfarðu þá tengingar og athugaðu að SIM kortið sitji rétt í festingunni.
Ef uppsetningin fer ekki í gang sjálfkrafa, opnaðu þá My Computer og finndu HUAWEI drifið og veldu þar að keyra skránna autorun.exe. Ef allt er eðlilegt þá ræsir sig upp uppsetningarforrit Siminn Setup. Uppsetningin getur tekið allt af 5 mínutur og athugaðu að fjarlægja ekki netkortið á meðan það er að setja sig upp. Fylgið leiðbeiningum á skjá við uppsetninguna.
Eftir uppsetninguna, ræsir forritið sig sjálft upp og biður um PIN númer á SIM/USIM kortið (ef PIN númer er virkt á kortinu). Sláðu inn PIN númer SIM/USIM kortsins ef beðið er um það. Ef forritið ræsir sig ekki sjálfkrafa upp, veldu þá Start - Program files - Siminn, og veldu Siminn forritið þar. Veldu nú að tengjast netinu með því að styðja á Connect hnapp eins og sýnt mynd hér að neðan:
Nú er uppsetningu lokið.
Athugaðu hvort netvafrinn þinn er stilltur á að hringja aldrei upp á netið.
Ef eitthvað af þessum forritum er uppsett á vélinni þinni og uppsetningin á netkortinu er ekki að ganga, prófaðu þá að slökkva á virkni þeirra áður en netkortið er sett upp og endurræsa síðan tölvuna.
2Ef þú hefur frekari spurningu þá sendu fyrirspurn til þjónustuversins eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.