
Á Þjónustuvefnum ræður þú ferðinni og getur sinnt þínum málum þegar þér hentar. Þú getur fylgst með símnotkun, fengið upplýsingar um gagnanotkun hjá Internetþjónustu og flett upp PUK númeri simans þíns, svo eitthvað sé nefnt. Þjónustuvefurinn er í boði fyrir alla viðskiptavini Símans.
Allt á einum stað
Yfirlit fyrir heimasíma, farsíma, sjónvarp og netnotkun á einum stað.
Skoða yfirlit
Engar áhyggjur af umframnotkun. Þú fylgist með stöðunni á Þjónustuvefnum.
Breyta þjónustu
Þú getur fært þig milli leiða og breytt stillingum þegar þér hentar.
Þú getur sótt sundurliðað yfirlit símanotkunar allt að ár aftur í tímann, skoðað magn niðurhals af internetinu, og séð hvaða myndir þú hefur leigt.
Þú getur skoðað greidda reikninga og prentað þá út. Einnig geturðu nálgast ógreidda reikninga.
Þú getur til dæmis flutt þig milli leiða í farsímaáskrift, breytt um sjónvarpspakka, virkjað stillingar fyrir síma, eins og símtalsflutning eða lokað fyrir hringingar í 900 númer.
Þú getur nálgast ýmsar hagnýtar upplýsingar eins og PUK númer símans þíns og internet lykilorð.