Þú getur gert miklu meira með farsímanum en bara að tala í hann. Farðu á netið í símanum og fylgstu með því helsta sem er að gerast, hvaða atburðir eru í gangi, fréttum, eða hvað vinirnir eru að gera. Netið í símanum er handhæg leið til að fara á netið án þess að vera bundin af því að komast í tölvu.
Kynntu þér verðskrá fyrir Netið í símann þar sem dagpakkinn kostar einungis 40 kr. fyrir 5 MB.
Það er margt í boði þegar þú ferð á netið í símanum. Þú getur t.d. flett upp heimilisföng á m.ja.is, og fengið kort af staðsetningu. Uppfært stöðuna þína á Twitter, skellt inn nokkrum myndum á Flickr, eða bara verið í góðu sambandi við vinina á MSN í símanum.
Áskriftaleiðir
Þú getur farið á Netið í símanum án þess að skrá þig í áskrift – gegn 40 kr. greiðslu fyrir daginn. Dagspakkinn er með 5 MB þaki og því tilvalinn ef þú notar netið lítið. Farir þú oft á netið gæti því verið hagstæðara fyrir þig að velja eina af þremur áskriftarleiðum okkar. Síminn hefur jafnframt lækkað töluvert verðskrá fyrir umfram MB.
| Leiðir í boði | Verð | Innifalið gagnamagn | Verð fyrir umfram MB |
|---|---|---|---|
| Dagpakkinn | 40 kr. á dag | 5 MB | Nýr dagpakki |
| 3G Netið 1 | 490 kr. á mánuði | 100 MB | 5 kr. |
| 3G Netið 2 | 890 kr. á mánuði | 500 MB | 4 kr. |
| 3G Netið 3 | 1.590 kr. á mánuði | 3 GB | 2 kr. |
Frelsi
40 kr. dagurinn fyrir Netið í símann í Frelsi
. Í fyrsta skipti sem að þú ferð á netið í símann innan dagsins borgarðu kr. 40 fyrir 5 MB. Eftir það þarftu ekki að hafa áhyggjur af notkuninni. Ef þú ert stórnotandi þá borgarðu 5 kr./MB eftir að hafa notað 15 MB.
Þá átt ekki að þurfa sérstakar stillingar til að notfæra þér 3G þjónustu, eins og t.d. fara á netið í símanum eða hringja myndsímtal. Eina tilfellið sem þú þarft 3G stillingar er þegar þú ætlar að horfa á Sjónvarp í farsímanum en þá þarft þú stillingar fyrir Streymi.
Sækja stillingar fyrir farsíma.
Þú hefurðu aðgang að útsendingum og völdu efni af 8 frábærum sjónvarpsrásunum, fyrir 0 kr. á Íslandi ef þú ert með GSM áskrift eða í Frelsi hjá Símanum. Njóttu þess að horfa á sjónvarpið í símanum í bestu mögulegu myndgæðum, í farsímasjónvarpi hérlendis.
Þú getur móttekið og sent póst úr vefpósthúsum eins og gmail.com og yahoo.mail.com. Ef síminn þinn hefur innbyggt tölvupóstforrit þá geturðu einnig sótt afrit af póstinum þínum beint í símann.
Þú getur hlustað á uppáhaldslögin þín í símanum af Tónlist.is. Ef þú ert með GSM áskrift, Mitt Frelsi eða ADSL internetþjónustu hjá okkur, þá býðst þér áskrift að Tónlist.is á betri kjörum en almennt gerist.
| Lýsing | Almennt verð | Sérkjör til viðskiptavina Símans |
|---|---|---|
| Mánaðaráskrift greidd með kreditkorti | 2.699 kr. | 1.699 kr. |
| Vikuverð greitt með farsíma | 799 kr. | 549 kr. |
Á Tónlist.is getur þú valið úr tveimur og hálfri milljón laga, innlendra sem og erlendra. Þú velur svo hvort þú hlsutar á tónlistina í farsímanum eða tölvunni. Jafnframt geturðu búið til þinn eiginn lagalista og hlustaðu á uppáhalds lögin þín eins oft og þú vilt.
Skrifaðu símanúmerið þitt í reitinn og smelltu á „Senda“.
Síminn er með stærsta og öruggasta dreifikerfi landsins í farsímaþjónustu, hvort sem um er að ræða GSM eða 3G, og erum við í fararbroddi í þjónustu við bæði þéttbýlissvæði og dreifðari byggðir landsins.