Fundarsíminn

Fundarsíminn er einföld og þægileg lausn til fundarhalda, þar sem notendur hringja í 755 7755 og slá inn fundarnúmerið. Staðsetning notenda og gerð símtækja hafa ekki áhrif á möguleika til þáttöku í símafundi.

Helstu kostir

  • Hægt er að boða allt að 14 gesti til símafundar, hvar og hvenær sem er
  • Fundarsíminn er ódýr og hagkvæm leið til að auka upplýsingaflæði og styrkja samskipti
  • Hægt er að nota Fundarsímann til fundarhalda erlendis fra
  • Einfaldur í notkun

Nánar um Fundarsímann

Ef fleiri en 14 fundarmenn þurfa að vera á sama símafundinn er hringt í 1811. Slíkur handvirkur símafundur getur hýst að hámarki 60 notendur á sama fundinum

Á handvirkum símafundi getur fundarstjóri, með aðstoð 1811 greitt símnotkun annarra fundargesta meðan á fundi stendur. Með þessari þjónustu er einnig hægt að tengja saman mismunandi fundi. Hámarkslengd símafundar er 180 mínútur og þegar 5 mínútur eru eftir af fundinum fá fundarmenn tilkynningu um að fundinum sé að ljúka.

Notkun fundarsímans erlendis

Hægt er að taka þátt í símafundi þótt viðkomandi sé á ferðalagi erlendis, bæði til þess að funda með fólki heima á Íslandi og eins til að funda með erlendum viðskiptaaðilum. Þegar hringt er erlendis frá er valið símanúmerið +354 755 7755 til að nota þjónustuna.

Þriggja manna tal

Þú getur komið á þriggja manna samtali. Viðmælendur heyra hver í öðrum og geta verið hvar sem er á landinu eða jafnvel hvor í sínu landi. Tvö símtöl eru gjaldfærð og sá sem hringir greiðir fyrir þau.

Notkun
Veldu fyrra númerið og þegar svarar velurðu R. Veldu seinna númerið og þegar svarar í því velurðu R3 og talar við báða.Þegar R-skipanir eru notaðar er gott að hafa eftirfarandi í huga:

R1 slítur sambandi.
R2 skiptir á milli tveggja viðmælenda.
R3 tengir þriðja viðmælanda við símtal.

Hringt úr talsíma

Tegund GjaldsVerð án vsk.Verð m. vsk.
Stofngjald0 kr.0 kr.
Mánaðargjald 0 kr.0 kr.
Upphafsgjald hvers fundarmanns 4,8 kr.6,00 kr.
Mínútugjald hvers fundarmanns 8,05 kr.10,10 kr.

Hringt úr GSM síma

Tegund GjaldsVerð án vsk.Verð m. vsk.
Stofngjald0 kr.0 kr.
Mánaðargjald 0 kr.0 kr.
Upphafsgjald hvers fundarmanns 3,94 kr.4,95 kr.
Mínútugjald hvers fundarmanns 20,08 kr.25,20 kr.

Tengdar síður

Komdu til okkar

Komdu til okkar

Viltu slást í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum? Hringdu í síma 800 7000, komdu í verslanir Símans eða sendu fyrirspurn.

Hvernig virkar símafundur?

Aðstoð

Lýsing á því lið fyrir lið hvernig símafundi er komið á.





Vefhlutar

Aðrir vefir