
Í Sjónvarpi Símans getur þú valið um áskriftarpakka með öllum íslensku sjónvarpsrásunum, m.a. Rúv, SkjáEinum og Stöð 2, og yfir 60 erlendar sjónvarpsstöðvar.
Í Sjónvarpi Símans getur þú einnig fengið aðgang að öllum stöðvum Stöðvar 2 og SkjásEins án þess að skipta um myndlykil.
Í Grunnáskrift færðu aðgang að RÚV. Auk þess innifelur áskriftin stöðvarnar ÍNN, Alþingi, fjölskyldurásina DR1, fréttarásina Sky News og barnarásina Boomerang, ásamt fjölda útvarpsstöðva með tónlist frá Music Choice (á ekki við um breiðbandsáskrift).
RÚV
RÚV +
DR1
Sky News
ÍNN
Alþingi
Yfir 60 sjónvarpsstöðvar sem leggja áherslu á fréttir, skemmtun, fræðslu og tónlist. Boðið er upp á klukkutíma seinkun íslensku sjónvarpsstöðvanna. Við tímaleiðréttum svo skandinavísku ríkisstöðvarnar á sumrin (plús rásir).
Blanda er góður kostur fyrir þá sem telja sig ekki þurfa allar stöðvar. Blanda er fjölbreytt safn 19 stöðva sem leggja áherslu á vandað efni á sviði frétta, dægurmála, skemmtunar og fræðslu.
Með Evrópupakkanum öðlast þú aðgang að bestu evrópsku stöðvunum. Hver stöð flytur staðbundnar fréttir og fylgist með dægurmálum í hverju landi.
Fjölskyldupakki SkjáHeims samanstendur af 15 sjónvarpsrásum. Þær eru sérvaldar með áherslu á þarfir allrar fjölskyldunnar. Þarna finna allir eitthvað við sitt hæfi, fréttir, íþróttir, barnaefni og skemmtun.
Sportpakkinn samanstendur af erlendum sjónvarpsrásum sem flytja fréttir af gangi mála í heimi íþróttanna.
Toppur samanstendur af vinsælustu erlendu sjónvarpsstöðvunum. Stöðvarnar níu spanna vítt svið afþreyingar fyrir fólk á öllum aldri.