NMT

NMT er farsímaþjónusta fyrir þá sem starfa eða ferðast utan alfaraleiða. NMT kerfið er eina farsímakerfið sem býður farsímaþjónustu um nánast allt land og á miðunum umhverfis landið. NMT sími hefur verið sjálfsagður búnaður í öllum skipum og bátun hér við land en einnig traustur ferðafélagi þeirra sem tryggja vilja öryggi sitt á landi sem sjó.

Helstu kostir NMT

  • Þjónustusvæði nánast um allt land og miðum í kringum landið
  • Langdrægi yfir 100 km við góðar aðstæður

Hverjum hentar þjónustan?

Þjónustan er fyrsta val allra báta og skipa við strendur landsins en einnig hentar hún vel fyrir alla þá sem ferðast utan þéttbýlis, á svæðum sem liggja utan þjónustusvæða GSM kerfisins

Áskriftaleiðir

Þrjár áskriftaleiðir eru í boði fyrir NMT notendur:

  • Almenn áskrift fyrir þá sem stöðugt þurfa að vera í sambandi
  • Frístundaáskrift þegar nota á NMT símann í fríum og ferðalögum
  • Stórnotendaáskrift ef notkun er mjög mikil og nauðsynlegt að vera stöðugt í símasambandi vegna starfs eða búsetu

Sparnaðarleiðir

NMT notendum standa til boða tvær sparnaðarleiðir:

  • Dúett - tveir farsímar á sama innhringinúmerinu
    Farsímarnir tengjast einu og sama símanúmerinu. en notkun þeirra er að mestu leyti óháð innbyrðis. Þegar hringt er í númerið hringir fyrst í öðrum símanum og síðan í hinum ef ekki er svarað. Öll notkun er gjaldfærð á sama símreikning og má því líta á Dúett sem viðbótarfarsíma við áskrift.
  • Vinir & vandamenn
    10% afslátt af þremur númerum sem oftast er hringt í (fyrir almenna símkerfið, NMT eða GSM kerfi Símans. 10% afslátt af þremur númerum sem oftast er hringt í. Þessi númer veljast sjálfkrafa og gilda fyrir hringingar í almenna símkerfið, NMT eða GSM kerfi Símans.

Hver er þróun langdrægna farsíma?

NMT kerfið hefur verið í rekstri frá árinu 1986 og reynst sérlega öruggt og gott kerfi. Þrátt fyrir það er ljóst að ekki verður hjá því komist að hætta rekstri þess á næsta ári, áætluð lokun 1. sept. 2010. Síminn hefur á undanförnum árum byggt upp mjög gott GSM kerfi um allt land en auk þess sett upp langdrægt 3G kerfi meðfram ströndinni. Nýja langdræga 3G kerfið er hugsað sem arftaki NMT og bíður það upp á alla eiginleika fullkomnustu farsímakerfa - stórt þjónustusvæði, mikil talgæði og háhraða gagnaflutning allt að 7,2 Mbit/s.

Tengdar síður

Dreifikerfi Símans

Síminn er með stærsta og öruggasta dreifikerfi landsins í farsímaþjónustu. Skoðaðu kort af útbreiðslunni.

Uppfærslur og reklar

Fáðu nýjustu uppfærslur og rekla fyrir 3G netlykilinn þinn.


Stillingar fyrir farsíma

Stillingar fyrir farsíma, en þær eru nauðsynlegar ef þú ætlar að horfa á sjónvarp í símanum.

Komdu til okkar

Viltu slást í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum? Hringdu í síma 800 7000, komdu í verslanir Símans eða sendu fyrirspurn.




Vefhlutar

Aðrir vefir