Golfið beint í GSM símann

Á 3G dreifikerfi Símans geturðu verið í háhraða netsambandi á flestum golfvöllum landsins og sinnt vinnunni um leið og þú nýtur hollrar útiveru.

Með símanum getur þú

  • Sótt upplýsingar um golfvelli
  • Haldið utan um skorið þitt
  • Mælt vegalengdir
  • Skoðað tölfræði
  • Fylgst með skori félaganna

Komdu við í verslun Símans og fáðu leiðbeiningar um hvernig þú getur notað símann þinn til að ná niður skorinu í sumar!


m.golfheimar.is

Þegar þú hefur sett upp Golfheima í símann þinn er auðvelt að ná í skorkort fyrir nýjan völl og skrá skorið, hvort sem er úti á velli eða inni í skála eftir hringinn. Síminn er í samstarfi við Golfheima og býður viðskiptavinum sínum gagnaflutning á m.golfheimar.is á 0 kr.

Ef þú lendir í vandræðum með upppsetningu á hugbúnaðinum, þá skaltu sendu póst á golfheimar@golfheimar.is með upplýsingum um hvaða farsíma (PDA) þú notar.

Leiðbeiningar um hvernig á að sækja hugbúnaðinn (client) er að finna á m.golfheimar.is.

Golfheimar

Með Golfheima í símanum heldur þú utan um skorið þitt hvar og hvenær sem er, skoðar tölfræði og leyfir félögunum að fylgjast með árangri þínum í beinni!

Golfheimar eru öflug vefmiðstöð fyrir íslenska kylfinga. Þar geta þeir skráð skor, skipulagt hópagolf og haft aðgang að fjölbreyttri tölfræði yfir árangur sinn og annarra. Golfheimar eru aðgengilegir öllum íslenskum kylfingum þeim að kostnaðarlausu.

Skráðu þig á golfheimar.is

Skorskráning

Skráðu skorið á vefnum eða í farsímanum. Á golfheimar.is geturðu stillt skráninguna eftir þínum þörfum, og skoðað þegar þér hentar. Golfheimar virka í flestum farsímum.

Hópagolf og golfmót

Í Golfheimum seturðu upp golfmót og heldur utan um mótaraðir fyrir hópinn þinn. Tilvalið fyrir fimmtudagshópinn eða fyrirtækjamótaröðina.

Tölfræði

Öflugir tölfræðimöguleikar Golfheima gera þér kleift að fylgjast með árangri þínum í ýmsum þáttum golfsins. Í golfheimum sérðu hverjir standa sig best í hópnum og samfélaginu öllu. Hver er með flesta fugla? Hver á besta skorið? Eða hver spilar Bergvíkina best?

Láttu félagana vita hvernig gengur

Golfheimar eru tengdir við helstu netsamfélög og þar getur þú útvarpað árangrinum þegar þú vilt. Þú getur einnig boðið vinum þínum að fylgjast með árangrinum í beinni, hvort heldur í farsímanum eða á vefnum.







Vefhlutar

Aðrir vefir