Síminn hefur í áratugi sérhæft sig í hönnun, rekstri og þjónustu einkasímkerfa. Það sem helst hefur tekið breytingum á þessu sviði undanfarin ár eru flutningsmáti talsins og form eignarhalds á búnaði.
Í dag býður Síminn hvort tveggja, „IP“ og „analog“ einkasímkerfi, og geta fyrirtæki valið um að hýsa búnaðinn sjálf eða fela Símanum hýsinguna, rekstur og uppfærslur. Allar lausnirnar miða að því að minnka þátt fyrirtækisins í rekstri einkasímkerfisins þannig að meiri tími gefist til að sinna kjarnastarfseminni. Hafðu samband við Fyrirtækjaþjónustu Símans og sérfræðingar okkar hjálpa þér að hanna lausn sem hentar þínu rekstrarumhverfi.
Símavist 1 og 2 eru einkasímkerfi hýst í vélasölum Símans sem eru þeir öruggustu sem völ er á og er uppitími tryggður óháð aðstæðum fyrirtækja. Símavist 3 og 4 henta þeim sem vilja byggja upp traust staðarnet samhliða innleiðingu einkasímkerfis og byggja á fullkominni tækni þróaðri af Cisco.
Greitt er fast verð á mánuði fyrir hvern starfsmann og fjárfestingar í upphafi eru í lágmarki. Síminn annast uppfærslur, rekstur og viðhald og fyrirtækið losnar því við útgjöld og umstang sem fylgja þessum þáttum.
Úrval endabúnaðar sem hægt er að tengja inn í kerfið og mismunandi flutningsmáti á talinu gefa viðskiptavinum færi á að tengjast sínu símkerfi óháð staðsetningu og/eða símtæki.
Sérfræðingar Símans vaka yfir kjarnakerfinu allan sólarhringinn og bregðast við á svipstundu ef eitthvað fer úrskeiðis. Síminn tryggir uppitíma kerfisins og þar af leiðandi að símtöl skili sér á réttan stað á tilsettum tíma.