
Íþróttabandalag Reykjavíkur kynnir Reykjavík International Games 2010 þar sem íslenskt afreksíþróttafólk mun keppa við heimsþekkta keppendur. Á leikunum er keppt í níu íþróttagreinum.
Bakhjarlar leikanna eru fyrirtækin Síminn og Orkuveita Reykjavíkur sem undirrituðu samstarfssamning vegna leikanna við sérstaka athöfn í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum, í hádeginu í dag.
Keppendur á RIG 2010:
Alexander Dale Oen silfurverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum 2008
Jakob Jóhann Sveinsson Íþróttamaður Reykjavíkur 2006
Robert Andersen heimsmeistari í keilu 2006
Martin Krabbe 4. sæti í 60 m á EM-innanhús 2009
Ásdís Hjálmsdóttir 22. sæti á heimslista í spjótkasti 2009
RIG:
Reykjavík International Games eða Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir eru nú haldnir í þriðja sinn. Á leikunum er keppt í níu íþróttagreinum og fer keppnin að mestu fram í Laugardalnum þriðju helgina í janúar ár hvert. Tilgangur leikanna er að auka samkeppnishæfni íslenskra keppenda og draga úr ferðakostnaði þeirra með því að fá sterka erlenda keppendur til leiks. Í ár eru keppendur um 2000 þar af rúmlega 300 erlendir gestir auk þess sem aragrúi sjálfboðaliða vinnur að skipulagi og framkvæmd mótsins.
Leikarnir standa frá 15. – 17. janúar
Á heimasíðunni www.rig.is má finna dagskrá ásamt frekari upplýsingum um leikana.

Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR og Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Símans ásamt fríðum hópi afreksfólks í íþróttum sem keppa á Alþjóðaleikunum um helgina.