Fréttir

28.01.2010 | 13:38

Síminn og Fjallafélagið í samstarfi

Highslide JS

Í samstarfi við Fjallafélagið og Harald Örn Ólafsson hyggst Síminn kynna 3G þjónustu sína og hvetja til hollrar og góðrar útiveru og hreyfingar. “9000-metra áskorun Fjallafélagsins og Símans“ er fjallgönguáætlun með reglulegum æfingagöngum sem endar með göngu á Hvannadalshnúk í maí.

Æfingaferðirnar eru fjölbreyttar og gefa þátttakendum góðan grunn fyrir átökin við hæsta tind landsins. Síminn mun standa fyrir beinni útsendingu af tindi Hvannadalshnúks. Einnig mun 3G tæknin verða nýtt til að senda fréttir af æfingaferðum og göngunni á Hnúkinn. Hæðarhækkun í göngunum verður samtals yfir 9000 metrar sem er meira en hæð Mt. Everest, hæsta fjalls heims. Sjá nánari upplýsingar á www.fjallafelagid.is


« Til baka




Vefhlutar

Aðrir vefir