
Síminn hefur gert svokallaðan gleðisamning við Hugmyndahús Háskólanna um verkefnið „Útgerðin 2010“. Verkefnið mun standa fram í desember 2010 og er ætlað nýútskrifuðum háskóla og tækninemum sem hvatning til þess að velja sér starf í nýsköpun og stuðla þannig að uppbyggingu atvinnulífsins. Útgerðin er regnhlíf yfir nýsköpunarverkefni sem fyrirtæki og háskólarnir í landinu bjóða uppá. Verkefnin eru sjálfstæð og óháð og geta útskrifaðir nemar sótt um að taka þau að sér. Síminn leggur til búnað og internetþjónustu ásamt einum farsíma og einum borðsíma og er frjálst að leggja til verkefni og ráðgjöf en Hugmyndalist leggur til húsnæði að Grandagarði 16, verkefnastjórn og tengslanet.
Fjöldi fólks saman kominn í gær í „Útgerðinni“ þegar samningurinn var undirritaður og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, skrifaði undir gleðisamninginn fyrir hönd Símans. Eftir undirritunina fékk Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, orðið og sagði að eftir því sem maður leggði meiri rækt við kærleika og sköpun þeim mun meira myndi þetta tvennt vaxa. Jón Gnarr, tilvonandi borgarstjóri, var síðan fenginn til að segja nokkur orð. Lagði hann áherslu á að gott væri að gefa af sér ef fólk vildi skapa eitthvað. Hann t.d. hefði ákveðið á einhverjum tímapunkti að láta ekki gamla karla með hatt sem keyra mjög hægt í umferðinni, pirra sig. Heldur hugsa jákvætt og sýna þeim skilning og þolinmæði. Hann fengi það örugglega margfalt tilbaka þegar hann yrði gamall maður í umferðinni.
Mynd 1. Samstarfsaðilar Útgerðarinnar: Íslandsbanki, N1, Marorka, Jónar Transport, VÍS og Síminn ásamt öðrum aðstandendum verkefnisins.

Mynd 2. Sævar Freyr og fleiri undirrita gleðisamninginn

Mynd 3. Jón Gnarr