Síminn hefur áhrif á líf allra landsmanna á degi hverjum og er talinn eitt traustasta fyrirtæki landsins. Síminn hefur það að markmiði að koma á tryggara sambandi við viðskiptavini sína með því að uppfylla þarfir þeirra.
Í því felst að fræða viðskiptavinina, leiðbeina þeim og veita ráðgjöf. Síminn aðstoðar viðskiptavini með þeim hætti að vörur og þjónusta fyrirtækisins nýtist þeim sem allra best og eru nýjustu lausnir á sviði talsíma, farsíma og gagnaflutnings sem og einstaklingsmiðaðar lausnir ávallt í forgrunni. Síminn er í einstakri aðstöðu til að bjóða viðskiptavinum sínum kosti sem veita ánægju í daglegu lífi, leik og starfi, en um það snýst staðsetning Símans á markaði – að auðga líf viðskiptavina sinna.
Fjárhagsupplýsingar um Símann má finna á vef móðurfélags þess, Skipti hf.
| | Lýsing |
|---|---|
| Nafn | Síminn hf. |
| Skráning | Síminn hf. er skráð hlutafélag í fyrirtækjaskrá |
| Stjórnarformaður | Brynjólfur Bjarnason |
| Forstjóri | Sævar Freyr Þráinsson |
| Höfuðstöðvar | Ármúli 25, 108 Reykjavík, Ísland |
| Kennitala | 500269-6779 |
| VSK númer | 10982 |
| Veffang | siminn.is |
| Netfang | siminn@siminn.is |
| Sími | 550 6000 |
| Fax | 550 6009 |
Síminn hf. hefur almenna heimild til fjarskiptastarfsemi. Í vissum tilvikum, t.d. við úthlutun númera og tíðna, þarf sérstakt leyfi til. Eftirlitsaðili með starfseminni er Póst og Fjarskiptastofnun.
Upplýsingar um meðferð tölvupósts sem starfsfólk Símans sendir utan fyrirtækisins.