WiFi Magnari
Margfaldaðu drægnina á þráðlausa netinu með WiFi Magnara frá Símanum!

Leyfðu okkur að sjá um að tengja netið í nýju íbúðina þína!
Fjarlægð frá netbeini milli hæða og burðarveggir geta komið í veg fyrir að netsamband náist um allt heimilið. Með einum eða fleiri WiFi Mögnurum getur þú tryggt frábært samband í öllum herbergjum. Einn WiFi Magnari fylgir með öllum netáskriftum, en þú getur bætt við fleiri mögnurum eftir þörfum!
Wifi Magnari er notaður til að bæta þráðlaust samband. Hann tekur við þráðlausu merki frá netbeini, endurvarpar því og stækkar þannig svæðið þar sem hægt er að nota þráðlausa netið.
Gott er að miða við að þú þurfir einn WiFi Magnara fyrir hverja 100 fermetra á heimilinu, en aðrir þættir eins og þykkir steypuveggir, stórar pottaplöntur, raftæki og fleira geta haft áhrif á WiFi dreifingu. Einfaldast er að byrja á því að setja upp einn magnara og bæta svo við eftir þörfum, en þjónustuverið okkar getur einnig hjálpað þér að meta þarfir þínar og mælt með réttum fjölda fyrir heimilið.
Tengdu WiFi Magnarann með snúru við netbeini og staðsettu hann miðsvæðis og ofarlega í rýminu. Ekki setja magnarann inn í skáp eða skúffu og forðastu að setja hann nálægt málmhlutum eða tækjum eins og ísskápum, þráðlausum heimasímum eða örbylgjuofnum.