Við erum í þessu saman!
Við leggjum áherslu á að styðja samfélagið með sérþekkingu og þjónustu, sýnum ábyrgð í umgengni við umhverfið og viljum vera góð fyrirmynd í verki.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Við leggjum áherslu á þrjú heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem tengjast starfsemi okkar og áhrifum á haghafa, samfélag og umhverfi.

Jafnrétti kynjanna
Við vinnum að jafnari kynjahlutföllum og fjölbreytni í tæknistörfum með styrkjum til kvenna og kvára í tækninámi við HR.

Nýsköpun og uppbygging
Við tökum virkan þátt í samfélagi vísinda- og nýsköpunar á Íslandi og viljum gera öllum kleift að nýta nútímatækni á þann hátt sem hentar þeim.

Sjálfbærar borgir og samfélög
Við setjum upp kolefnislága stafræna innviði um allt land sem draga úr umhverfisáhrifum okkar sem og þeirra sem nýta sér þjónustu Símans.


Samfélagið
Stafræn umbreyting samfélagsins felur í sér fjölmörg tækifæri fyrir Símann til að vera drifkraftur jákvæðra breytinga. Við viljum leggja okkar af mörkum til aukins fjölbreytileika og betri þjálfunar vinnuafls, sem og að stuðla að bættri heilsu, vellíðan og lífsgæðum, bæði innan og utan Símans.
Umhverfið og Síminn
Síminn leggur áherslu á áhrif virðiskeðjunnar og notkun auðlinda. Við viljum hafa jákvæð áhrif með því að draga úr kolefnisspori og hvetja samstarfsaðila til að slást í lið með okkur í þeirri vegferð.
Samgöngur
Við höfum fjölgað rafmagnsbílum og sett upp hleðslustöðvar fyrir starfsfólk Símans. Við hvetjum fólk til að nýta sér umhverfisvæna ferðamáta og bjóðum upp á rafmagnsbíla til láns ef starfsfólk þarf að skjótast eitthvað á vinnutíma. Þannig getur það skilið einkabílinn eftir heima og við minnkum kolefnislosun í rekstrinum enn frekar.
Netbeinar úr endurvinnanlegu plasti
Í samstarfi við birgja okkar höfum við dregið úr magni pakkninga og minnkað kolefnisspor vinsæls endabúnaðar eins og netbeina og myndlykla. Búnaðurinn er nú settur í endurunninn pappa sem má endurvinna aftur, og búnaðurinn sjálfur framleiddur úr endurunnu plasti.
Nýtum notað
Í samstarfi við Foxway Group geta heimili og fyrirtæki komið með gömul tæki og fengið inneign upp í ný. Foxway Group nær að endurvinna um 92% af öllum búnaði sem að til þeirra kemur og við styðjum þannig við hringrásarhagkerfið og tryggjum að verðmætir málmar, plast og fleira eignist framhaldslíf.
Færanlegur farsímasendir
Nýr björgunarbíll Björgunarfélags Hornafjarðar er sérsmíði og hentar sérstaklega vel á hálendinu og uppi á jöklum. Hann er búinn fyrsta færanlega farsímasendi landsins; lausn þróuð af Símanum en þannig má bæta samband þar sem lítið eða ekkert samband er til staðar auk þess að hægt er að nota gervitunglasamband ef allt annað þrýtur.
Styrktarverkefni 2024
Árlega styrkjum við og styðjum fjölda verkefna, góðgerðarfélaga, félagasamtaka, heilbrigðisstofnana, björgunarsveita o.fl. enda viljum við vera virkur þátttakandi í samfélaginu. Við styðjum við málefni sem tengjast styrktarstefnu Símans og erum stolt af þeim verkefnum sem við höfum getað stutt.

Stjórnarhættir og hagsæld
Síminn trúir því að góð forysta og stjórnarhættir, einkum er varðar netöryggi, siðferði og yfirsýn stjórnenda og framlag til hagkerfisins sé lykilinn að sjálfbærum og farsælum rekstri.
Stjórnskipulag og yfirsýn
Síminn starfar í samræmi við lög sem um starfsemina gilda og „Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja“, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq. Stjórn mun reglulega fjalla um og fara yfir árangur Símans í þeim þáttum sem fram koma í stefnu þessari og aðgerðaráætlun í sjálfbærni.
Viðskiptasiðferði
Síminn mun tryggja að allt starfsfólk og samstarfsaðilar vinni í samræmi við meginreglur og gildi sem koma fram í siðareglum Símans. Allt starfsfólk og stjórn Símans skulu árlega staðfesta fylgni við siðareglur með undirskrift sinni ásamt því að fræðsla um málefnið verður skyldufag hjá öllu starfsfólki.
Netöryggi
Netöryggi er órjúfanlegur þáttur í starfsemi Símans og vernd gagna og persónuupplýsinga verður alltaf forgangsverkefni. Síminn tryggir vernd kerfa sinna, vara, allra gagna og upplýsinga með víðtækri fræðslu til starfsfólks ásamt því að tryggja að öll kerfi okkar uppfylli hæstu gæðakröfur.
UFS skýrslugjöf og samskipti við hagaðila
Síminn leggur áherslu á að viðhalda góðum samskiptum við lykil haghafa með opnum samtölum um þróun, tækifæri og sjálfbærnitengdar áhættur. Sjálfbærni er síkvikt umfangsefni og með opnum samskiptum og þáttöku í sjálfbærni samfélaginu lærum við af öðrum og deilum því sem við höfum gert með öðrum.

Samfélagssjóður Símans
Síminn vill vera virkur þátttakandi í samfélaginu og hluti af því er að styðja við margvísleg málefni. Styrktarstefnan okkar endurspeglar sjálfbærnimarkmið okkar og byggir á þeim heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem við höfum sett í forgrunn. Við leitumst við að styrkja verkefni sem tengjast kjarnastarfsemi okkar og hafa jákvæð áhrif á samfélagið, með sérstakri áherslu á jafnrétti, nýsköpun og umhverfismál.