Endurvinnum og nýtum notað!
Gömul tæki eiga alltaf framhaldslíf. Kíktu við í verslun okkar, skilaðu inn gömlum tækjum og þú færð inneign hjá Símanum fyrir gömlu tækin og getur keypt þér ný. Við tökum við ýmsum tækjum hvort sem það eru símar, spjaldtölvur, snjall- og hlaupaúr, tölvur og fleira.
Upphæð inneignar fer eftir ástandi tækis. Kveiki tækið ekki á sér eða sé skjárinn brotinn tökum við samt við því enda vel hægt að endurnýta tæki þó þau virki ekki lengur.
Síminn er í samstarfi við sænsk/eistneska fyrirtækið Foxway Group sem endurvinnur tækin í sátt um samfélagið og náttúruna. Foxway ná þannig að endurvinna um 92% af öllu sem er í þeim raftækjum sem til þeirra berast og þannig helst hringrásarhagkerfið gangandi. Áður en tækið er sett í endurvinnslu fer það í gagnaeyðingu, þannig hverfa öll gögn á augabragði leynist þau í gömlum tækjum.
Vinsamlegast hlaðið tækið sem að þið ætlið að skila áður en þið komið með það í verslanir Símans.