Hvaða verðskrá gildir um borð í ferjum eða skemmtiferðaskipum?

Ef ferðast er með ferju/skemmtiferðaskipi er yfirleitt um tvo kosti að ræða ef viðskiptavinir vilja nýta sér símaþjónustu um borð:

  1. Að tengjast WiFi um borð.
  2. Að reika, það er að hafa kveikt á reiki (e. "roaming") og nota reikisamninga Símans.

Við mælum með að viðskiptavinir kynni sér verðskrá hvers skips fyrir notkun WiFi um borð. Síminn sendir viðskiptavinum SMS skeyti með upplýsingum um hvað kostar að nota símann ef kveikt er á reiki. Við mælum alltaf með að viðskiptavinir hafi slökkt á reiki þar sem mjög dýrt er að nota símann í reiki úti á hafi.

Skýringarmynd1Skýringarmynd2