Njóttu þess að fara í pottinn eða út að hlaupa með heiminn á hendi þér!
Hringdu, taktu á móti símtölum, hlustaðu á tónlist og borgaðu fyrir kaupin - allt í úrinu.
Ef þú ert í Heimilis, Þægilega eða Einfalda pakkanum færð þú Úræði með þinni áskrift!
Kauptu áskrift í Apple eða Samsung úrið þitt hjá Símanum!
Úræði er áskrift fyrir snjallúrið þitt sem gerir þér kleift að vera með símanúmerið þitt í snjallúrinu. Þannig getur þú farið út úr húsi án þess að taka símann þinn með þér. Þú getur hringt, tekið á móti símtölum og borgað með úrinu. Úræði hentar sérstaklega vel í útivist, svo sem hlaupum eða göngum. Kynntu þér þjónustusvæði Símans hér:
Til þess að virkja Úræði í Apple Watch þarft þú að panta Úræði í gegnum Watch appið í iPhone-inum þínum. Til að virkja Úræði í Samsung Watch þarft þú að panta Úræði í gegnum Galaxy Wearable appið í Android símanum þínum. Pöntunin fer því alfarið í gegnum sjálfsafgreiðslu. Þjónusturáðgjafi getur ekki nýskráð Úræði fyrir þig.
Þú þarft að vera með cellular Apple Watch SE eða Apple Watch Series 5 eða nýrra eða Samsung Watch 4 eða nýrra eð 4G/LTE til að geta notað Úræði. Einnig þarftu að vera með nýjustu uppfærsluna á úrinu þínu og í símanum.
Til að virkja Úræði þarft þú Apple Watch úrið þitt og farsímann þinn. Mikilvægt er að farsímanúmerið þitt sé skráð í Áskrift, því Úræði virkar ekki í Frelsi eða Þrennu. Við mælum með að endurræsa símann áður en þú hefst handa við uppsetningu og passa upp á að þú sért með nýjustu uppfærslu í bæði úrinu og farsímanum.
Opnaðu Watch appið í símanum þínum
Veldu úrið þitt og ýttu á Mobile Data -> Set Up Mobile Data
Þar næst skráir þú inn notendanafn og lykilorð
Notendanafn og lykilorð er það sama og inn á Þjónustuvef Símans. Ef þú manst ekki lykilorðið þitt getur þú fengið það sent með því að slá inn kennitöluna þína hér.
Nú getur þú klárað skráninguna í Apple Watch appinu í símanum með því að fylgja skrefunum sem koma upp og byrjað að njóta!
Þú þarft að vera með iPhone 6s eða nýrri síma og vera með uppfærsluna iOS 15 eða nýrri til að geta notað Úræði.
Til að virkja Úræði þarft þú Samsung Watch úrið þitt og Android farsímann þinn. Til að hefja ferlið þarf að ná í “Galaxy Wearable” appið í Play Store.
Til að geta virkjað Úræði þarf Samsung Watch að vera tengt við Android farsímann með “Galaxy Wearable” appinu.
Veldu “Stillingar úrs” -> “Farsímaáskriftir”
Veljið “Næsta” og þá birtist innskráningarsíða
Þar næst skráir þú inn notendanafn og lykilorð
Notendanafn og lykilorð er það sama og inn á Þjónustuvef Símans. Ef þú manst ekki lykilorðið þitt getur þú fengið það sent með því að slá inn kennitöluna þína hér.
Nú getur þú klárað skráninguna í Samsung Wearable appinu í símanum með því að fylgja skrefunum sem koma upp.
Þegar búið er að virkja Úræði þá færð þú spurningu um hvort þú viljir virkja áskriftina í úrinu, þeirri spurningu þarf að svara játandi og þá virkjast Úræðið í úrinu.
Farsíminn þinn þarf að vera í eftirágreiddri áskrift til að geta notað Úræði og þú þarft að vera skráður rétthafi og greiðandi áskriftarinnar.
Fyrirframgreiddar áskriftir eins og Frelsi, Þrenna og Krakkakort styðja ekki Úræði.
Til þess að geta farið út með snjallúrið þitt og notað það eins og þú notar símann þinn þá er Úræði málið. Þá getur þú hringt, svarað símtölum og sent SMS úr farsímanúmerinu þínu allt í gegnum úrið.
Best er að skrá nýja áskrift í úrið hjá Símanum, en þú þarft að fjarlægja áskriftina sem er virk í dag í úrinu þínu áður en það er gert.
Mismunandi villu skilaboð geta komið upp, við viljum leysa þau með þér.
Ef að fyrirtæki eða annar aðili er rétthafi eða aðalgreiðandi á farsímanúmerinu þá getur þú ekki skráð þig fyrir Úræði, til að framkvæma rétthafabreytingu getur þú sent rafræna rétthafabreytingu hér: https://www.siminn.is/adstod/eydublod. Ef þú þarft að breyta aðalgreiðenda þá getur þú sent okkur tölvupóst á radgjof@siminn.is.
Ef að númerið þitt er í frelsi (Almennt Frelsi, Þrennu og Krakkakorti) þá getur þú ekki fengið Úræði að svo stöddu.
Sum Apple Watch úr sem eru keypt í Bandaríkjunum eru með lokað fyrir notkun í Evrópu.
Við bendum þér á að heyra í þjónustufulltrúum okkar ef að þú ert að lenda í vandræðum með skráningu.
Eins og er styður Auðkenni ekki við rafræn skilríki með Úræði. Það þarf því að græja allt sem þarfnast rafrænna skilríkja með símanum.
Ef þú týndir símanum þínum og þarft að fá þér nýjan þá helst Úræðið enn á sínum stað, svo lengi sem þú ert með sama símanúmer. Þú parar nýja símann þinn við úrið og getur haldið áfram að nýta þér áskriftina. Ef þú týnir snjallúrinu þá er betra að segja upp Úræði svo tenging úr símanúmerinu þínu yfir í úrið slitni.
Hægt er að stjórna því hvaða tilkynningar koma í Apple úrið þitt í gegnum stillingar í Watch appinu í iPhone og Samsung úrið þitt í Galaxy Wearable appinu í Android farsíma.
Úræði áskrift kostar 800 kr. á mánuði og mun sú upphæð bætast við símreikninginn þinn.
Ef þú vilt af einhverjum ástæðum hætta með Úræði þá getur þú sagt því upp í gegnum Watch appið á iPhone fyrir Apple Watch eða Galaxy Wearable appið á Android farsíma fyrir Samsung Watch.
Hægt er að hafa eitt Úræði tengt við hverja farsímaáskrift. Þannig að ef að þú ert með aðra farsímaáskrift getur þú verið með annað Úræði með henni.