Yfirlit yfir verð- og skilmálabreytingar 1. ágúst 2022
Eftir áralanga þjónustu mun fundarsími Símans 755-7755 leggjast í helgan stein eða þann 14. febrúar 2023.
Fundasíminn var mikil bylting á sínum tíma þar sem allt að 14 aðilar gátu tekið þátt í einum og sama fundinum með símann í hendi sér nær fyrirvaralaust. Fyrir enn stærri fundi var svo hægt að halda símafund fyrir allt að 108 manns sem þó var ekki mikið notað.
Tæknin hefur fyrir löngu leyst fundasíma Símans af hólmi og því fær hann að setjast í helgan stein enda fjöldi forrita í boði sem ekki aðeins bjóða upp á símafundi heldur myndfundi, deilingu gagna ofl með einföldum hætti sem fjöldi fyrirtækja og einstaklinga notfærir sér á degi hverjum.
Fundasími Símans mun því hætta að virka þann 14. febrúar 2023.