Þessa dagana eru Google Pixel snjallsímar að fá uppfærslu frá Google en með henni virkjast loks 5G og VoLTE stuðningur fyrir Google Pixel 7, Pixel 7a, Pixel 7 Pro, Pixel Fold, Pixel 8 og Pixel 8 Pro.
Síminn er fyrsta og eina fjarskiptafyrirtækið á Íslandi sem er með 5G og VoLTE stuðning frá Google fyrir snjalltækin þeirra.
Google stýrir uppfærsluhraðanum og tekur oftast nokkra daga að fá uppfærsluna í tækin sé hún ekki komin nú þegar. Hægt er að athuga hvort að uppfærslan sé tiltæk með því að fara í Settings – System – System update.