Til að auka öryggi og þjónusta viðskiptavini og vísindafólk hefur samband verið stórbætt við gosstöðvarnar í Geldingadölum.
Já, það er eldgos. Þúsundir hafa nú upplifað eldgosið í Geldingadal enda mögnuð birtingarmynd af krafti íslenskrar náttúru. Mikilvægt þykir að sjálfsögðu að eiga frumlegustu myndina fyrir samfélagsmiðla og keppist fólk við að grilla pulsur, bera upp bónorð, spila blak eða eiga flottustu ljósmyndapósuna við rauðglóandi hraunið.
Til að auka öryggi og þjónusta viðskiptavini var fjarskiptabúnaður settur upp á Langahrygg suðaustur af gosstöðvunum í Geldingadölum, en búnaðurinn er stilltur saman við fjarskiptasendi í fjallinu Þorbirni. Unnið var að skipulagningu málsins frá því strax eftir að gos hófst en það var Neyðarlínan og fjarskiptafyrirtækin sem unnu að málinu fyrir almannavarnir.
Miðvikudaginn síðasta var svo sendistyrkur og afkastageta á svæðinu stórbætt með nýjum tíðnisviðum sem Síminn einn hefur aðgang að. Þannig hefur öryggi á svæðinu verið stórbætt ásamt því að mælitæki vísindasamfélagsins geta betur sinnt rannsóknum sínum.
Ráðgjafateymi Fyrirtækjalausna hefur á að skipa reynslumiklum hópi sérfræðinga sem hefur mikla og góða þekkingu á fjarskipta- og upplýsingatækniþjónustu. Þessi hópur leggur kapp á að veita alhliða, faglega og sérsniðna þjónustu sem uppfyllir þarfir allra fyrirtækja algjörlega óháð stærð þeirra.
Panta