Þáttaröðin IceGuys hefur komið inn eins og stormsveipur í íslensk sjónvarp. Ferskur andblær í leikna íslenska flóru. Viðtökurnar hafa verið frábærar en annar þátturinn í þáttaröðinni kom inn í Sjónvarp Símans sl. föstudag og sló áhorfsmetið um rúmlega 50%.
„Viðtökurnar hafa verið langt fram úr væntingum. Það er ótrúlega skemmtilegt að heyra hvað þættirnir virðast hitta í mark hjá öllum aldurshópum og við erum himimlifandi með þetta,“ segir Hannes Þór Halldórsson, einn af leikstjórum og framleiðendum þáttanna.
„Þetta er fyrsta leikna serían okkar í framleiðslufyrirtækinu Atlavík og við erum bæði afar stolt af árangrinum og þakklát fyrir áhorfið.“
Fyrsti þáttur af IceGuys setti nýtt áhorfsmet í Sjónvarpi Símans fyrir rúmri viku en annar þáttur bætti um betur og það eru greinilega margir sem bíða spenntir eftir framhaldinu.
„Við í IceGuys erum alveg að pæla í því að fá okkur sleðahunda eftir þessar frábæru viðtökur. Slíkt er stemningssvellið að verða á landinu og við erum auðvitað í skýjunum með þetta allt saman,“ segir Jón Jónsson, einn af meðlimum IceGuys.
„Í næstu snjókomu biðjum við landsmenn að hugsa til okkar því hvert einasta snjókorn er þakklætisvottur frá okkur ísdrengjunum,“ segir Jón, bróðir eins ástsælasta tónlistarmanns Íslands, Friðriks Dórs.