Mikil eftirvænting er eftir þáttunum enda hafa lög sveitarinnar fengið mikla hlustun ásamt því að þeir tróðu eftirminnilega upp í Herjólfsdal um Verslunarmannahelgina. Þættirnir fjalla um hið nýstofnaða strákasveit IceGuys og leið þeirra á toppinn en leiðin er sannarlega þyrnum stráð. Strákasveitina skipa þeir Aron Can, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, Jón Jónsson og Rúrik Gíslason.
„Ég hef aldrei séð verkefni fá eins mikinn meðbyr, enda ertu með fimm stórstjörnur sem hafa allir fyrir löngu heillað íslensku þjóðina. Bæði strákarnir í IceGuys og framleiðslufyrirtækið Atlavík hafa unnið þrekvirki í skrifum, leik og framleiðslu. Ég hlakka til að leyfa áskrifendum okkar að njóta,“ segir Birkir Ágústsson dagskrárstjóri innlendrar dagskrárgerðar hjá Símanum.
Þættirnir eru í leikstjórn Hannesar Þórs Halldórssonar, Allans Sigurðssonar og Hannesar Arasonar í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Atlavík en handritshöfundur er enginn annar en Sóli Hólm.
Það er ljóst að með tilkomu IceGuys er ný Ísöld hafin. Allt sem þeir hafa gert hingað til hefur fengið frábær viðbrögð og hefur aðdáendahópur Ísdrengjanna, IceGang kallað eftir einhverju ennþá stærra til að svala ísþorstanum. Og þegar IceGang kallar þá svara IceGuys.