Þriðjudaginn 24. október verða 48 ár liðin frá fyrsta Kvennafrídeginum árið 1975, en þá lögðu konur niður störf til að berjast fyrir auknu jafnrétti. Í ár á Kvennafrídeginum munu konur og kvár leggja niður störf í heilan dag því baráttan gengur allt of hægt.
Jafnrétti er hagsmunamál allra og þó mikið hafi áunnist í þessari baráttu hér á landi er henni hvergi nærri lokið. Síminn hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á jafnréttismál og því sköpum við að sjálfsögðu rými fyrir konur og kvár sem starfa hjá Símanum að leggja niður störf og leggja baráttunni lið.
Við vonum að sem flest fyrirtæki leggi málefninu lið og vonum einnig að viðskiptavinir okkar sýni því skilning að í einhverjum tilvikum gæti afgreiðslutími lengst þennan dag.
Á myndinni eru þær Björg Sigurjónsdóttir, Astrid Jensen og Ásta Jóhannsdóttir árið 1968 að afgreiða símtöl til og frá útlöndum í Landssímahúsinu við Austurvöll.