Öruggari og einfaldari greiðslumáti með iPhone og Apple Watch
Síminn Pay, fjártæknifélag Símans býður nú viðskiptavinum sínum Apple Pay, snertilausa og örugga greiðslulausn þar sem aldrei þarf að taka upp greiðslukort eða gefa upp kortaupplýsingar í þökk sé öruggu umhverfi iPhone. Þannig eru viðskiptavinir betur varðir fyrir mögulegum fjársvikum.
Ferlið er einfalt, eftir að hafa sett upp Apple Pay dugar að setja símann upp að greiðsluposa og greiðslan fer í gegn. Hver færsla er örugg og auðkennd með aðstoð Face ID, Touch ID eða PIN númeri. Apple Pay virkar í öllum helstu verslunum, stórmörkuðum, leigubílum, kaffihúsum ofl.
Viðskiptavinir geta einnig greitt með Apple Pay með iPhone, iPad og Mac tölvum til að greiða hratt og örugglega í gegnum öpp eða á netinu í Safari vafranum án þess að stofna sérstaka aðganga eða stimpla inn í sífellu heimilsfang og kreditkorta upplýsingar. Apple Pay einfaldar lífið þegar kemur að því að greiða fyrir heimsendingu, netverslun, samgöngur ofl. Apple Pay má einnig nota til að greiða fyrir þjónustu í öppum á Apple Watch snjallúrinu.
Öryggi og persónuvernd eru þungamiðja Apple Pay. Þegar viðskiptavinir nota debit- eða kreditkort með Apple Pay er kortanúmerið ekki geymt á tækinu sjálfu eða hjá Apple heldur er sérstakt dulkóðað gervinúmer búið til sem hýst er á öruggum stað á sérstakri vottaðri flögu sem hefur það eina hlutverk að hýsa upplýsingar sem þessar á öruggan máta.
Einfalt er að setja upp Apple Pay. Á iPhone er nóg að opna Wallet appið, smella á plúsinn og fylgja leiðbeiningum til að setja upp Léttkort Símans Pay. Eftir að kortinu hefur verið bætt við er hægt að nota Apple Pay sem greiðslumáta nær samstundis. Þegar greitt er með Apple Pay haldast öll fríðindi sem fylgja notkun Léttkortsins.
Fyrir nánari upplýsingar um Apple Pay; http://www.apple.com/apple-pay/
Fyrir nánari upplýsingar um Símann Pay; https://www.siminnpay.is
Síminn Pay er fjártæknifélag í eigu Símans.