Í dag 16. nóvember mun þjónustunúmer Símans fyrir einstaklings- og fyrirtækjaþjónustu verða 550 6000 í stað 800 7000 og 800 4000. Eitt símanúmer í stað tveggja sem mun einfalda líf viðskiptavina okkar en samhliða þessari breytingu aukum við opnunartíma þjónustuvers Símans.
Þjónustufulltrúar einstaklingsþjónustu svara nú í símann á milli kl. 9 til 20 alla virka daga ásamt því að svara á netspjalli á siminn.is. Um helgar verður opið milli kl. 11 og 19 en aðeins yfir netspjall á siminn.is. Spjallmennið okkar, Sísí stendur svo auðvitað vaktina allan sólarhringinn en það getur svarað ótrúlegustu spurningum um þjónustu Símans.
800 númerin munu virka eitthvað áfram en með tíð og tíma munu þau hverfa á braut enda börn síns tíma.