Í dag mun nýtt viðmót Sjónvarps Símans birtast viðskiptavinum okkar en það mun taka einhverja daga fyrir það að birtast öllum. Apple TV-notendur munu upplifa hið nýja viðmót síðar í sumar. Ítarlegar notendaprófanir fóru fram við hönnun viðmótsins ásamt því að nýjustu straumar og stefnur úr heimi viðmótshönnunar ættu að birtast í frísklegu og nýju útliti sem leyfir öllu því frábæra efni sem hægt er að nálgast í Sjónvarpi Símans að njóta sín.
Allar helstu aðgerðir sem viðskiptavinir eru vanir að nota eru óbreyttar og því ætti notkun á nýja viðmótinu lítið að flækjast fyrir fólki nema vonandi að vera betra fyrir augun ásamt því að efnið í Sjónvarpi Símans ætti að vera aðgengilegra og nær hverju sinni. Við vonum að viðskiptavinir okkar taki vel í þessa uppfærslu og hvetjum þá til að hafa samband ef eitthvað er ekki eins og það á að vera eða ef hugmyndir vakna um hvernig mætti gera enn betur. Viðmótið er lifandi og erum við hvergi nærri hætt að bæta og breyta.