Hraði nettenginga á Íslandi hefur breyst mikið í áranna rás, árið 1999 setti Síminn ADSL kerfið í loftið með 256 Kb/s hraða sem síðar fór í 512 Kb/s, 1000 Kb/s sem með stöðugri þróun endaði í 20 Mbps hraða. Áður höfðu ISDN+ tengingar verið það allra besta sem í boði var með 128 Kb/s hraða þó að flest heimili hafi stigið sín fyrstu skref á internetinu í gegnum innhringiaðgang sem við bestu mögulegu aðstæður skilaði 56 Kb/s. Fyrstu ljósleiðaratengingu í sögu þjóðarinnar lagði Síminn á milli Múlastöðvar og símstöðvarinnar á Austurvelli árið 1986 og nokkrum árum síðar var starfsfólk Símans búið að tengja ljósleiðara við allar símstöðvar landsins.
Með stöðugri tækniþróun og aukinni netnotkun Íslendinga hefur þörf heimila fyrir aukna bandbreidd aðeins aukist. Frá 50 Mb/s hraða Ljósnets (VDSL) tenginga sem byggðu á ljósleiðara að heimilum fólks en koparþráðum síðustu metrana sem í dag ná 100 Mbps/s hraða hefur vöruframboð Símans tekið stakkaskiptum til að mæta þessari síaukinni þörf.
Fjöldi nettengdra tækja á heimilum fólks fjölgar stöðugt. Eitt sinn voru það aðeins tölvur sem þurftu nettengingu en síðustu tvo áratugi hefur tæknin tekið slík stökk að nettengd tæki á heimilum má oft telja í tugum. Sjónvörp, símar, spjaldtölvur, far- og heimilistölvur, leikjatölvur, ísskápar, þvottavélar, hátalarar og fjöldi annarra snjall- og heimilistækja þurfa nú nettengingu til að geta talað við notendur sína og jafnvel saman við hvort annað og á næstu árum mun þörfin fyrir örugga og hraða nettengingu aðeins aukast og skipta enn meira máli.
Hingað til hefur tenging heimila ekki verið flöskuhálsinn heldur þráðlaus net innan heimila sem ekki aðeins þurfa að vera rétt uppsett m.t.t. til staðsetningar senda heldur hefur hraði þráðlausra neta alltaf verið lægri en mesti mögulegi hraði þeirrar heimilistengingar sem Síminn hefur boðið upp á. Þess vegna er þetta stökk í 10 Gbit/s nauðsynlegt til að undirbúa framtíðina þar sem næsta stökk í þróun þráðlausra neta, WiFi 7 er handan við hornið þar sem hraðinn verður meiri en nettengingar dagsins í dag geta boðið upp á. Til að forðast þann flöskuháls og tryggja bestu mögulegu upplifun til næstu ára er uppfærsla á ljósleiðarakerfinu nauðsynleg.
10 Gbit/s nettengingar verða þó ekki nauðsyn fyrir öll heimili. Netnotkun og tækjakostur heimila er misjafn og 1 Gbit/s er og verður áfram meira en nóg fyrir mörg heimili. En tæknin er tilbúin og þegar að þörfin kallar á aukna bandbreidd eru nettengingar Símans tilbúnar.