FASTLÍNA
Áskriftarleiðin Endalaus heimasími mun hækka um 300 kr. og mun kosta 2.200 kr. eftir breytinguna.
FARSÍMI
Áskrift 1 GB mun verða að Áskrift 5 GB en mun hækka um 200 kr. Áskrift 15 GB, Endalaus með Netinu hækkar um 50 kr. Áskrift 50 GB hækkar um 200 kr og mun kosta 5.600 kr.
INTERNET
Endalaust Net hækka um 100 kr. og mun kosta 8.300 kr, Net 100 GB mun hækka um 200 kr. og kosta 6.400 kr. Stakur gagnaflutningur og gagnaflutningur yfir ADSL mun hækka um 300 kr. og kosta 4.500 kr.
SJÓNVARP SÍMANS
Leiga á myndlykli mun hækka um 50 kr. og mun því kosta 1.500 kr. á mánuði. Verð á straumum mun hækka um 100 kr. og kosta 1.100 kr.
Síminn Heimur – Allt hækkar um 200 kr sem og Síminn Heimur – Evrópa en Síminn Heimur – Grunnur mun hækka um 100 kr.
HEIMILISPAKKAR
Heimilispakkinn mun hækka um 300 kr. og mun því kosta 19.460 kr. og Þægilegi pakkinn sömuleiðis og mun kosta 19.410 kr. Einfaldi pakkinn mun hækka einnig um 300 kr. en mun kosta 14.500 kr.
SKILMÁLAR
Almennir viðskiptaskilmálar Símans ásamt skilmálum fyrir internetþjónustu verða uppfærðir og taka þeir gildi 1. febrúar 2025. Í almennum viðskiptaskilmálum er sagt frá því að reikningar frá Símanum verða ekki lengur birtir í heimabanka viðskiptavina ásamt því að skerpt er á umfjöllun um ábyrgð viðskiptavina vegna uppsagnar á þjónustu, áhrif uppsagna á áskriftarpakka og ábyrgð viðskiptavina vegna skila á búnaði ásamt því að bætt er við umfjöllun um bótaferil Símans.
Í skilmálum internetþjónustu er skerpt á umfjöllun um óheimila samnýtingu.