Farsímaþjónusta Símans virkar í rúmlega 500 löndum þökk sé víðfeðmu samstarfi Símans við fjarskiptafélög í 190 löndum. Við leggjum kapp á að skipta við trausta aðila og oft fleiri en eitt fjarskiptafélag í hverju landi til að tryggja gott samband sem víðast á hverjum stað. Kostnaður sem fylgir því að nota íslenskt símanúmer erlendis er þó misjafn eftir löndum og hvetjum við því viðskiptavini okkar að kanna málið áður en lagt er af stað, sjá nánar hér.
Frá og með 1. nóvember mun Síminn bjóða lægri verð þegar kemur að notkun í Bandaríkjunum, Sviss, Kanada og Grænlandi. Bretland og Gíbraltar munu að sama skapi færast í sama verðflokk en þau voru áður hluti af „Roam Like Home“.
Viðskiptavinir Símans sem fara til Bretlands þurfa því að hafa í huga að öll notkun í Bretlandi er gjaldfærð skv. verðskrá en nýtir ekki lengur innifalda notkun sem fylgir áskrift viðskiptavinar.
Við mælum með Ferðapakkanum til að lækka kostnað á ferðalögum í þessum löndum sem og öðrum, sjá nánar hér.
Síminn vill hvetja viðskiptavini sína sem notfæra sér opin þráðlaus net á ferðalögum erlendis að huga að netöryggi sínu og treysta ekki öllum opnum þráðlausum netum í blindni.