Að mati CreditInfo er Síminn framúrskarandi fyrirtæki 2022 en Síminn er þannig sjötta árið í röð að fá þessa góðu viðurkenningu sem traust fyrirtæki sem byggir rekstur sinn á sterkum stoðum og eflir hag allra.
Við erum stolt af því að fá þessa viðurkenningu enda Síminn fyrirtæki sem heimili og fyrirtæki í landinu reiða sig á alla daga, alltaf.
Til að teljast framúrskarandi er horft til nokkurra lykilþátta eins og lánshæfi, tekna og eiginfjárhlutfalls ásamt því að sökum stærðar Símans er litið til verka okkar þegar kemur að sjálfbærni. Er þar horft til umhverfis, félagslegra þátta og stjórnarhátta en við hjá Símanum birtum sjálfbærniskýrslu félagsins fyrr á árinu ásamt því að ný sjálfbærnistefna var samþykkt á haustmánuðum 2021.