Allar deildirnar á einum stað.
Allir leikirnir í beinni útsendingu.
Aðeins 1.990 kr. á mánuði.
Allir leikir í Olís deild karla og kvenna ásamt Grill66 deildinni verða sýndir í beinni útsendingu öllum þeim sem hafa áskrift að Handboltapassanum. Áskrift að Handaboltapassanum mun kosta 1.990 kr. Útsendingar eru á vegum HSÍ, Síminn sér um innheimtu áskriftargjalds og dreifingu útsendinga HSÍ til áskrifenda.
Allar beinar útsendingar fara fram í Handboltapassanum sem má finna á forsíðuni í sjónvarpsviðmótinu en til þess að geta horft á leikina þarf áskrift að Handboltapassanum. Útsendingar fara fram í gegnum sjálfvirkar myndavélar sem nýta gervigreind til að koma útsendingum heim í stofu. Handboltapassinn er aðgengilegur yfir allar dreifileiðir Sjónvarps Símans hvort sem það er yfir myndlykil Símans eða Sjónvarp Símans appið í snjall- tækjum eða sjónvörpum. Sjónvarp Símans appið er opið öllum óháð því hvar viðkomandi heimili kaupir sína fjarskiptaþjónustu.
Á seinni stigum munu útsendingar frá leikjum yngri flokka t.d. 3. og 4. flokki karla og kvenna bætast við Handboltapassann.
Samhliða þessu mun Síminn sýna einn leik í viku, frá bæði Olís deild karla og kvenna í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans á fimmtudögum og laugardögum en þar verður umfjöllun sem verður með hefðbundnari hætti og ekki stýrt af sjálfvirkum myndavélum. Ekki þarf að hafa áskrift að Handboltapassanum til að sjá þær útsendingar þar sem þeir eru sýndir í opinni dagskrá.