Léttkort Pay er ný tegund greiðslukorts sem býður upp á aukinn sveigjanleika. Með Léttkorti stjórnar þú ferðinni og greiðir niður eins og þér hentar. Kortið er gefið út af Mastercard og því má nýta það hjá yfir 29 milljónum söluaðila um allan heim.
Þú stýrir ferðinni og greiðir niður eins og þér hentar hver mánaðamót.
Þú getur notað Léttkortið hjá yfir 29 milljón söluaðilum út um allan heim. Þar sem kortið er gefið út af Mastercard og getur þú notað kortið hjá öllum vefverslunum og söluaðilum sem taka við Mastercard.
Léttkortið er eingöngu í boði í stafrænni útgáfu. Það tekur aðeins örfáar mínútur að sækja um kortið í appinu og þú getur byrjað að nota það um leið og umsókn þín hefur verið samþykkt.
Þú færð tilboð og afslætti hjá fjölda verslana og veitingastaða í gegnum Léttkortið í Síminn Pay appinu.
Safnaðu Vildarpunktum Icelandair með Léttkortinu.
Viðskiptavinur getur valið hversu marga vildarpunkta þau safna en hægt er að velja þrjár leiðir:
Árlegt tengigjald til Icelandair Saga Club er 1.500 krónur og á móti færast 2.000 Vildarpunktar til korthafa.
Vildarvinur Síminn Pay fær fastan afslátt hjá völdum samstarfsaðilum í Mathöllinni og í Torginu.
Léttkortið frá Síminn Pay býður upp á sveigjanlegar greiðslur þar sem þú stýrir ferðinni og greiðir niður eins og þér hentar hver mánaðamót
Þegar sótt erum Léttkortið þá stillir þú hversu mikið þú vilt greiða til baka í hverjum mánuði. Hægt er að stilla endurgreiðslu hlutfallið frá 5% til 100%. Lágmarksgreiðsla þarf alltaf að vera 5.000 kr. eða 5% af höfuðstól.
Jón fær 100.000 kr. heimild og stillir 5% greiðsluhlutfall í Síminn Pay appinu. Hann ákveður að nýta alla heimildina sína og greiðir því 5% (auk kostnaðar) 1. hvers mánaðar af heildarupphæð útistandandi skuldar. Ef að Jón notar Léttkortið ekki neitt næsta mánuð þá greiðir hann 5% af 95.000 kr. í næsta mánuði. Jón getur einnig ákveðið að breyta greiðsluhlutfallinu sínu eins og honum hentar hverju sinni.
Léttkort Pay er gefið út af Mastercard og því getur þú notað kortið hjá yfir 29 milljónum söluaðila um allan heim.
Léttkortið er sett í veski(wallet) í símtækinu þínu og getur þú greitt snertilaust hjá söluaðilum í gegnum Apple Pay.
Já þú getur það. Kortanúmerið á Léttkortinu er að finna í Síminn Pay appinu ásamt öllum helstu upplýsingum til þess að versla hjá vefverslunum út um allan heim.
Já þú getur það, þú einfaldlega setur Léttkortið í veski (wallet) í Apple Pay og þá getur þú notað Léttkortið já yfir 29 milljónum söluaðila um allan heim.
Þegar þú hefur sótt Léttkortið er það aðgengilegt í veskinu (Wallet) í símtækinu þínu. Þú getur þannig greitt snertilaust hjá söluaðilum í gegnum Apple og Google Pay.
Léttkort Pay er gefið út af Mastercard og því getur þú notað kortið hjá yfir 29 milljónum söluaðila um allan heim. Léttkorts notendur geta verslað á netinu með hefðbundnum hætti og skráð inn kortaupplýsingar sem hægt er að nálgast í Síminn Pay appinu.
Allar upplýsingar og stillingar á Léttkortinu er að finna í Síminn Pay appinu.
Við minnum á að gefa ekki upp kortaupplýsingar nema á öruggum vefsvæðum.
Þegar þú borgar með Léttkortinu leggst ekkert ofan á færsluna þína og þú kaupir gjaldeyri fyrir sömu upphæð og við gerum hverju sinni. Kort án gengisálags kostar 695 kr. á mánuði og virkar bæði fyrir færslur erlendis sen og færslur í erlendum vefverslunum.
3D Secure er staðfestingaraðferð frá VISA og MasterCard til að auka öryggi í netviðskiptum fyrir söluaðila og korthafa. Með því að taka upp 3D Secure geta söluaðilar dregið verulega úr áhættu á því að stolin kort séu notuð hjá þeim í netviðskiptum því korthafi þarf að staðfesta kaup með lykilorði sem berst í símanúmer sem er skráð bakvið kortið. 3DS 2.0 er nýjasta útgáfan af staðfestingaraðferðinni og er um leið skilvirkari og öruggari leið til þess að auðkenna þínar greiðslur.
Auðkenningaraðferðin veitir aukið öryggi í netgreiðslum sem gerir svikahröppum erfiðara fyrir að nálgast þínar greiðsluupplýsingar.
Já, kortið þitt hefur verið skráð í staðfestingaraðferð Mastercard og veldur því að í hvert skipti sem þú sérð öryggismerki Mastercard (Mastercard SecureCode) við greiðslu á netinu þá er þitt kortanúmer sjálfkrafa auðkennt. Við greiðslu þá er haft samband við útgefandann til þess að staðfesta þitt auðkenni til sönnunar þess að þú sért raunverulegur eigandi kortsins.
Þú munt fá 6 stafa kóða einskiptis auðkenningarkóða (OTP) fyrir hverja netgreiðslu hjá hverjum og einum söluaðila. Einskiptis auðkenningarkóðinn (OTP) er sendur í SMS-I eða með tölvupósti í farsíma eða á netfang sem þú hefur skráð hjá þínum kortaútgefanda. Þú einfaldlega skráir inn einskiptis auðkenningarkóðann (OTP) á auðkenningarsíðunni sem birtist og ýtir síðan á staðfestingar takkann. Eftir það er einskiptis auðkenningarkóðinn staðfestur af korta útgefanda og færslan verður annað hvort samþykkt eða hafnað.
Hvort sem um er að ræða farsímanúmer eða netfang þá verður það að hluta til afmáð en verður sýnt á auðkenningarsíðunni og þú getur séð hvort allar upplýsingar eru réttar. Ef að farsímanúmerið eða netfang er rangt þá hafnar þú færslunni eða uppfærir persónuupplýsingar á síðunni eða hefur samband í Þjónustuver í síma 5506000.
Ef þú telur að það séu svikafærslur á þínu korti eða tilraunir til slíkra færslna þá þarftu að hafa beint samband við þjónustuver í síma 5506000.
Þú sækir um Léttkortið í Síminn Pay appinu. Það tekur aðeins örfáar mínútur frá því að þú sækir um kortið þar til þú getur byrjað að nota það.
Umsókn tekur til ýmissa þátta, t.d. lánshæfismats sem reiknast út frá lánshæfis viðskiptavina út frá gögnum frá Creditinfo.
Ef þú vilt óska eftir frekari útskýringu á umsóknarferlinu þá getur þú sent tölvupóst.
Viðskiptavinir geta fengið allt að 1.5 milljón króna í heimild en ýmsir þættir hafa áhrif á heimildina hjá Síminn Pay, t.d vegna lánshæfis viðskiptavina út frá gögnum frá Creditinfo.
Ef að viðskiptavinur er með útistandandi lán á Léttkaupskortinu þá minnkar sú heimild sem er á Léttkortinu.
Jón er með 500.000 kr. í heimild en er með 100.000 kr. í útistandandi láni á Léttkaupskortinu þá getur Jón notað 400.000 kr. til lántöku á Léttkortinu.
Ef þú vilt óska eftir frekari útskýringu á ákvörðun heimildar þá getur þú sent tölvupóst á en athugið að það er ekki hægt að hækka heimildir á einstaka viðskiptavinum
Þú sérð yfirlit yfir allar þínar færslur á Léttkortinu í Síminn Pay appinu.
Sjá nánar á mynd hvernig það er gert.
Þú læsir Léttkortinu í Síminn Pay appinu.
Þú einfaldlega ferð í appið og ýtir á hnappinn "læsa korti".
Léttkortið býður upp á víðtæka ferðatryggingu frá VÍS. Ef þú ert með Léttkort og ferðatryggingu getur þú leitað til VÍS ef þú lendir í ferðatjóni. Þau sjá um að meta tjónið og greiða þér bætur samkvæmt kortaskilmálum.
Sjá nánari upplýsingar um ferðatrygginguna hér.
Léttkort Pay er sveigjanlegt greiðslukort sem þýðir að þú stýrir ferðinni.
Verðskrá Léttkortsins